Rein - við seljum stein!

Verkefni staðfest – hvað ber að huga að?

Efnisval

Þeim mun fyrr sem efni og efnisþykkt er valin þeim mun meiri líkur eru á því að verkefnið tefjist ekki. Sumt efni getur tekið 5-8 vikur að koma til landsins eftir að það er pantað.

Tæki 

Ef um er að ræða verkefni þar sem skera á út fyrir vaski, blöndunartæki og/eða helluborði er gott að vera búin að ákveða/og kaupa þau tæki áður en við komum til þín að mæla. Annað hvort þurfa tækin að vera til staðar þegar við komum að mæla eða þeim er komið upp í Rein á Viðarhöfða 1 eins fljótt og mögulegt er.

Vaskar geta verið yfirfelldir, jafnsléttir og undirlímdir og helluborðin eru ýmist yfirfelld eða slétt felld í steininn. Áður en vaskur eða helluborð er keypt er gott að kynna sér hvort tækið henti í þá uppsetningaraðferð sem þú óskar eftir.

Mæling

Það getur verið vika eða meira í bið eftir mælingu frá því að við fáum staðfestingu á því að allt sé klárt fyrir mælingu. Gott er að bóka mælingu viku eða svo áður en innréttingar eru settar upp til að tryggja sem skemmstan tíma frá því að innrétting er sett upp og þangað til við komum til þín að mæla.

Mæling er formlegur verkfundur þar sem er farið yfir helstu upplýsingar. Upplýsingar úr mælingu gilda en ekki það sem hefur verið rætt um fyrir mælingu.

Greiðslur

Eftir mælingu uppreiknast tilboðið eftir raunmálum og viðskiptavinur fær tölvupóst um innheimtu um fyrirframgreiðslu á verkefnið án uppsetningar. Lokagreiðsla kemur svo skömmu eftir uppsetningu á verkefninu og hefur 7 daga eindaga í banka. Ef þú hefur óskir um greiðsludreifingu getur þú haft samband við sölumenn Rein.

Framleiða eftir teikningu?

Rein getur framleitt verkefni þitt eftir teikningum (án þess að mæla) en þá ber viðskiptavinur ábyrgð á því að þau séu rétt. Algengt er hornskekkja sé í steyptum veggjum eða að skekkja sé í málum á innréttingum samanborið við teikningar. Afleiðing af því getur verið sú að platan passar ekki fullkomlega að veggnum og veldur þykkari kítti rönd en þörf krefur.

Því er mun öruggara að fá mælingu hjá okkur sem er mjög nákvæm, gerð með þrívíðu tæki.

Ef við framleiðum eftir teikningu og málin reynast ekki rétt getur komið til auka kostnaðar við lagfærslu/nýja framleiðslu og uppsetningu.

Í mælingunni sjálfri

Fyrir mælingu er gott að vera búin að mynda sér skoðun á eftirfarandi hlutum, ef við á:

  1. Hversu langt vilt þú að borðplatan standi fram yfir innréttingu?
  2. Er veggplata, hversu hátt upp á hún að ná?
  3. Ef það eru samskeyti í plötunni, hvar viltu að þau séu? Ef þú ert óviss með hvar þér finnst best að hafa þau, hafðu samband við sölumenn Rein sem geta aðstoðað þig að velta upp þeim möguleikum. 

Mikilvægt er að viðskiptavinur sé sjálfur til staðar þegar mæling á sér stað til að geta svarað þeim spurningum sem gætu komið upp. 

Allar innréttingar þurfa að vera komnar upp og almennilega festar. Mælst er til að fagaðili setji upp til að tryggja að innréttingar séu beinar og vel festar. Ef framhliðar á innréttingu eru ekki komnar er mikilvægt að vera með upplýsingar um þykkt á þeim og sömuleiðis hvernig höldur/grip koma til með að vera á innréttingu.

Í mælingunni sjálfri gætu komið upp atriði sem þarf að leysa eins og styrkingar sem vantar á innréttingu, vinklar sem þarf að kaupa upp við veggi og svo framvegis. 

Uppsetning

Í flestum tilfellum setur Rein upp verkefnið og ber þá alla ábyrgð á því verki. 

Í sumum tilfellum þarf kranabíl í uppsetningu vegna stærðar plötu. Kranabílllinn er á kostnað verkkaupa.

Rein límir niður helluborð og festir vaska, verkkaupi hverju sinni þarf svo að vera í sambandi við annars vegar rafvirkja og þá hins vegar pípulagninga aðila.

Rein hefur ekki leyfi til að tengja rafmagn né tengja vatn við blöndunartæki og vask. 

Ert þú staðsett/ur utan höfuðborgarsvæðis ?

Skoðið tilboðsblaðið vandlega, gangið þannig úr skugga um að allt sem við á sé á tilboðinu ykkar þar með talið, máltaka og uppsetning.

Ef aðrir en Rein setja upp er gott að fá verðhugmynd um uppsetninguna beint frá því fyrirtæki.

Dæmi;

Á Akureyri hefur Rein verið í áralöngu samstarfi við Heið/Guð-byggir, verkkaupi hverju sinni hefur sjálfur samband við HGB varðandi máltöku og síðar uppsetningu

Borðplata inn í gluggasyllu:

Ef Rein framleiðir samskeytalausa plötu inn í gluggasyllu þarf innrétting að vera sett upp í þeirri hæð að borðplatan hangir 3-4mm fyrir ofan efnið í gluggasyllunni. Einnig þarf að framfylgja reglum birgja um radíus í hornum. Ef borðplata snertir bæði innréttingu og gluggasylluna sem er úr öðru efni er það á ábyrgð kaupanda ef plata skyldi springa vegna spennu eða hitabreytinga.

Afhendingartími

Almennt séð er afgreiðslufresturinn hjá Rein 6-10 vikur frá mælingu, mismunandi eftir verkefnastöðu, lagerstöðu efnis ofl.

Áætlun um afhendingu er ekki loforð. 

Hér er listi yfir atriði sem geta haft áhrif á afgreiðslutíma.

  • Mæling á sér stað stuttu fyrir sumar- og jólafrí.
  • Kaupandi gerir breytingar á efnisvali.
  • Uppgefin mál eru önnur en þegar kemur að mælingu og það þarf að panta inn meira af hráefni en gert var ráð fyrir í upphafi við tilboðs gerð verkefnis.
  • Greiðsla tefst á innborgun á verkefni.
  • Óvenjulega mikið álag á verksmiðju.

Rein er að öllu jafna með mikið af mældum verkefnum og erfitt að svara nákvæmlega fyrir hvenær áætluð afhendingardagsetning er. Við reynum þó eftir bestu getu að áætla dagsetningu. Endilega hafðu samband við sölumenn Rein sem geta gefið þér stöðuna hverju sinni.

Eftir uppsetningu

Mismunandi tegundir steina hafa ólíka eiginleika hvað varðar sem dæmi hita- og blettaþol. Kvartsefnin þola hita ekki eins vel og til dæmis Dekton steininn og sumir náttúrusteinar. Náttúrusteinarnir þola svo margir hverjir ekki bletti eins vel og kvartsefnin og Dekton. 

Kynntu þér vel eiginleika steinsins sem þú hyggst versla, kosti, galla og hvað ber helst að varast þegar kemur að almennri umgengni og síðar umhirðu.

Share with us:
Scroll to Top
Secret Link
[fibosearch]